Ásett verð miðast við 75% sameignarkaup.
Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 1 – Íbúð 03-01.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Tilbúin til afhendingar.
Sameignarkaup — þú fjármagnar aðeins 75% af kaupverði: 83.925.000
- 75% verð: 83.925.000 kr.
- S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
- Lágmark 10% eigið fé (8.392.500 kr.)
- 0% leigugreiðsla í allt að 36 mánuði ef þú nýtir kauprétt innan þess tíma
- Spurningar og svör um sameignarleiðina á s8.is/sameign
Sameignarsamningur er undirritaður samhliða kaupsamningi.
Fáðu nánari upplýsingar á sölusíðu eignarinnar, þar sem þú færð aðgang að söluyfirliti og öðrum skjölum með rafrænum skilríkjum og getur gert tilboð beint. Sendu fyrirspurn á [email protected] eða hringdu í síma 583 2000. Hafðu samband og bókaðu skoðun.
3ja herbergja íbúð á 3. hæð með tvennum svölum, aðrar í suður. Birt stærð er 107,1 fm þar af 5,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á tvennar svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt, blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Hlíð 2.
Nánari lýsing: Fataskápar í anddyri. Gengið er inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á tvennar svalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa, blöndunartæki úr byssubláu stáli, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Hjónaherbergi með fataskápum og svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með „walk-in“ sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð, speglaskápur og blöndunartæki úr byssubláu stáli, innbyggð í sturtu. Þvottaherbergi með ljósri innréttingu, vaski og leirljósum gólfflísum. Sérgeymsla í kjallara merkt 0001 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingarfyrirkomulagi þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.
Um Hlíðarhorn
Hlíðarhorn er 3–5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 íbúðir, 2–5 herbergja. Hverri íbúð fylgja svalir, þaksvalir eða sérafnotareitur í innri garði, og íbúðirnar eru hannaðar með tilliti til náttúrulegrar birtu og nýtingar fermetra. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og sérstök áhersla er lögð á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd álklæðningum í mismunandi litum ásamt við, með gluggum úr ál/við.
Hlíðarhorn er í 102 Reykjavík, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta við fætur Öskjuhlíðar. Þjónusta, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða og stórir vinnustaðir eru í göngu- og hjólafæri.
Bílakjallari
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er samnýttur samkvæmt deiliskipulagi. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnum íbúðum hefur verið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum; kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallarans samhliða kaupum.
Nánari upplýsingar
Á www.hlidarhorn.is má sjá allar íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni. Skilalýsing seljanda ásamt upplýsingum um hönnun og byggingu er einnig á heimasíðu verkefnisins.
Athugið
Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt, 0,3% af endanlegu brunabótamati.
Auk kaupverðs greiðir kaupandi:
- Stimpilgjald af kaupsamningi — 0,4% við fyrstu kaup, 0,8% almennt, 1,6% hjá lögaðilum, af fasteignamati.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og öðrum skjölum — 3.800 kr. af hverju skjali.
- Lántökugjald samkvæmt verðskrá lánastofnunar.
- Umsýslugjald samkvæmt gjaldskrá Heima fasteignasölu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.