Heima fasteignasala kynnir kynnir Valshlíð 5 - Íbúð 112.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent janúar 2026..
Sendu fyrirspurn á [email protected] eða hringdu í síma 5832000 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina. Á sölusíðu eignarinnar. færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.
Opin og björt 2ja herbergja íbúð á 1. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 54,2 fm þar af 5,8 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Anddyri opnast beint inn í vel skipulagt alrými, eldhús
og stofu, með gólfsíðum gluggum og útgengi á suðursvalir. Hvít eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur með lýsingu. Krómuð blöndunartæki á baði. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0073. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.