Heima fasteignasala kynnir fjölbýlishús í 260, Reykjanesbær:
LAUS TIL AFHENDINGAR – Falleg 4ra herbergja ENDAÍBÚÐ með suðursvölum og gólfhita í Innri-Njarðvík.
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi með gólfhita í íbúð, sérmerktu bílastæði fyrir framan húsið. Íbúðin er laust til afhendingar strax við kaupsamning.
Áætlað fasteignamat fyrir árið 2026 er 66.900.000 kr.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari upplýsingar gefur Aron M. Smárason, Löggiltur fasteignasali
Sími:888-7282, [email protected]
Eignin skiptist í:
- Forstofu með fataskáp
- Opið og bjart eldhús
- Rúmgóða stofu með útgengt á svali
- Þrjú svefnherbergi með fataskápum
- Baðherbergi með þvottaaðstöðu
- Sérgeymslu á jarðhæð (7 fm)
- Sérmerkt bílastæði fyrir framan hús
Forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með viðarinnréttingu, efri og neðri skápum, helluborði, ofni, tengi fyrir uppþvottavél og stæði fyrir ísskáp.
Stofa er opin og björt með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari og sturtuaðstöðu, upphengdu salerni, innréttingu við vask og glugga sem veitir náttúrulega loftræstingu.
Þvottaaðstaða er innan baðherbergis.
Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð, skráð 7,0 m².
Gólfefni eignarinnar, fyrir utan votrými, er parket sem hægt er að pússa upp.
Viðhald og endurbætur:
Rafmagn hefur verið yfirfarið
Gluggar og opnanleg fög yfirfarin
Gólfhitakerfi yfirfarið
Nýlega máluð eign að innan
Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin skráð 112,6 fm auk 7 fm sérgeymslu – samtals 119,6 fm auk sameignarrýma.
Búið er að merkja bílastæði fyrir framan húsið.
Samkvæmt fasteignamati ríkissins er íbúð á hæð skráð 112,6 fm og geymslan skráð 7 fm samtals 119,6 fm, ásamt sameignarrými í kjallara.
Athugið: Seljandi hefur ekki haft búsetu í eigninni og getur því aðeins veitt upplýsingar sem byggja á opinberum gögnum.
Staðsetningin er góð, húsið er við hliðina á Akurskóla og leikskólanum Akur, stutt er í verslunarkjarna og á Reykjanesbrautina.
Frekari upplýsingar veitir Aron M. Smárason fasteignasali s. 5832000 - [email protected]
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.